Nemandi er skráður inn í nemendalista skólans:
- Smellt er á "Nýr nemandi" hnappinn.
- Í glugganum sem þá birtist er slegin inn kennitala nemandans, án bandstriks.
- Þá eru upplýsingar um nafn nemanda, heimilsfang, nöfn aðstandenda sótt í þjóðskrá og sett í skráningarskjal nemandans.
- Skrá þarf nánari upplýsingar um byrjunardagsetningu, dvalartíma, máltíðir, o.fl.
- Einnig þarf að stilla upplýsingar um myndatöku í flipanum "Bráðaupplýsingar".
- Að lokum er skráning vistuð með "Uppfæra" hnappi.