Ef skóli sér um að skrá flutning barna úr skóla í Karellen í nýjan skóla í Karellen er hægt að finna umsókn barnsins undir "afgreitt". Þar er hægt að fara í tannhjólið við umsóknina og velja breyta. Þá opnast umsókn viðkomandi barns. Hér þarf staða umsóknar að vera bíður afgreiðslu og tegund umsóknar flutningur.
Ef barn hefur verið handskráð í skólann og engin umsókn til undir afgreitt, er leiðin þessi:
- nemendur
- umsóknir
- skrá umsókn
- staða umsóknar á að vera bíður afgreiðslu
- tegund umsóknar á að vera flutningur