Byrjið á að velja Slysaskráningar í lágréttu valmyndinni til að fá lista yfir allar skráningar.


Ef prenta á allt sem er á skjánum er smellt á plús merkið hægra megin á rauðu stikunni og smellt á Print list.


Það er hægt að sía listann eftir tegund aðila, slysstað og tímabili, sbr. svæðin í rauða rammanum.


Einnig er hægt að ráða dálkum í listanum, leiðbeiningar um uppröðun lista hér:  Uppröðun lista



Ef prenta á út fyrir einn nemanda er nafn eða kennitala viðkomandi slegin inn í leitargluggann og smellt á Leita hnapp.  Síðan er listinn prentaður út eins og áður með Print list.


Einnig er hægt að vista listann sem excel textaskjal á tölvunni með Hlaða niður lista hnappi.


Ef þörf er á að prenta út einstaka skýrslu er hún opnuð með því að smella á hana í listanum og síðan halda niðri Ctrl. hnappi á lyklaborði og ýta á P.  Þá opnast prentaðgerð tölvunnar og hægt að prenta skýrsluna.